Blogg laugarinnar

Blogg fyrir fyrrverandi eða núverandi starfsmenn laugarinnar!

27.02.2008 14:01:57 / laugin

Hvað er að frétta?

Hæhæ.... ég vidi bara athuga hvort einhver kíkir hér inn.... ég verð að viðurkenna að ég er ekki búin að koma hér lengi :$

Hvað er að frétta af öllum? Endilega skilið eftir komment ;)

Af mér af frétta er það að mér er:
 - Mér gengur vel í húsmóður hlutverki.
 - Ekkert baby á leiðinni
 - Nóg að gera í fjármálaverkfræðinni og gengur mjög vel.
 - Annars allt annað það sama :d

Helena

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 03:54:20 / laugin

Kveðjur frá Kanada

Hæ hæ. Ég er núna komin til Vancouver og langaði bara að kasta kveðju á ykkur. Ef einhvern langar í ævintýraferð til Kanada þá mæli ég með þessari borg. Hún er einhver sú fallegasta sem ég hef séð. Frábær blanda af stórborg með háhýsum og svo útivistarsvæðum, ströndum og fjöllum sem gnæfa yfir borginni. Núna er ég bara í fríi að njóta lífsins þangað til skólinn byrjar. Sólarkveðjur frá Kyrrahafinu, Halldóra.

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 11:41:16 / laugin

Takk fyrir síðast + Myndir

Takk fyrir síðast :D. Hvað voru þið lengi fram eftir? Og takk fyrir mig Patsý....rosalega góður eftirrétturinn ;) 

Ég lofaði Svövu að setja inn myndir sem voru inn á heimasíðunni minni. Hér eru þær :haha:

BKV, Helena :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 00:22:24 / laugin

Sumarhittingur

Hey everybody. Við Patsy höfum áhuga á að halda hitting okkar laugarkrakkanna, við búum svo vel að hafa aðgang að íbúð næstu þrjár vikurnar. Hvaða tímasetningu líst ykkur best á? Mér, Benna, hentar fimmtudagurinn 19. júlí best, og við lofum að taka upp Despó fyrir hvern þann sem má ekki missa af þeirri undarlegu sjónvarpsseríu.

 

Huggulegt kvöld í faðmi vina: hvað getur verið betra?? Íbúðin er í vesturbænum, nánari staðsetning fæst með því að hafa samband við Patsy eða Benna.

 

Tilkynningar um þátttöku vel þegnar!

 

Benso. 


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 21:37:48 / laugin

Sumarfréttir

Hvað er að frétta af ykkur öllum? Hvar eruð þið að vinna í sumar? Hafið þið ekki frá neinu skemmtilegu að segja? - Halldóra

» 32 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 10:24:11 / laugin

Tilkynning

Það er dálítið sem ég (Benni) þarf að segja ykkur. Dulítið sem hefur komið upp á nú nýverið og algjörlega breytt lífi mínu til batnaðar. Ég er allt í einu farinn að líta lífið bjartari augum og farinn að hlakka til að vakna á morgnana. Líf mitt hefur öðlast tilgang á nýjan leik, inn í líf mitt hefur villst ákveðin tilfinning; vera sem ég átti ekki von á að myndi ná að komast aftur inn fyrir brynjuna sem ég hef sett upp á síðustu árum.

 

Tilkynningin er svohljóðandi:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég mun starfa í laugardalslaug í sumar :)

 

Hvað? Hvað hélduð þið eiginlega að ég væri að tala um?


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 10:28:42 / laugin

Kveðja...

Sæl og blessuð öllsömul!

 Vil byrja á að óska Halldóru til hamingju með daginn. Vona að þú eigir góðan og skemmtilegan dag.

 Síðan vil ég þakka ykkur öllum fyrir síðast. Þetta var mjög gaman:D Hvernig fóru annars leikar eftir að ég var farin? Var tekin önnur umferð í kvikmyndaleiknum?

Kveð að sinni

Svava


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 12:42:57 / laugin

Afmæliskveðja

Sæl öllsömul!

 Vildi bara óska Möggu til hamingju með afmælið í gær:lol:

Vona að þú hafir átt góðan dag.

 Kveðja Svava


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 09:45:21 / laugin

Bara BOND þema...

Hæhæ!

Mikið er síðan orðin flott. Bara Bond þema komið á. Hver fór síðan að sjá myndina og hvernig var hún? Ég myndi allaveganna halda að hún hefði verið góð miðað við skoðanakönnunina. Ég er ekki búin að sjá myndina, en um leið og ég fer mun ég kjósa.

Síðan bara orðið frekar stutt til jóla:lol:

Er einhver komin í jólaskap?


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 18:15:23 / laugin

Hittingur

Ég tek áskorun Möggu og sting upp á eftirfarandi tímasetningu:

Sunnudagskvöldið 10. september.
Staður: Ef engar aðrar hugdettur þá Næsti bar eða Kofi Tómasar frænda.

Hvað segið þið um þetta?

Framhaldsskólakennarinn

» 15 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 19:51:30 / laugin

Lifandi síða

Síðan er sko alls ekkert dauð. Hún hefur bara legið í dvala í sumar en núna þegar fólk fer að byrja aftur í skóla og vinnu þá verður vonandi meira skrifað hérna. Eitthvað verður maður að gera þegar maður nennir ekki að læra. Hvernig væri annars að reyna að hittast einhvern tíma bráðlega, áður en allir verða á kafi í prófum og verkefnaskilum? Ég geri a.m.k. ráð fyrir því að hafa mjöööög mikið að gera í vetur þannig að mér finnst alveg tilvalið að hefja veturinn á skemmtilegheitum, meðan maður hefur ennþá tíma til að sinna þeim. Hvað er fólk annars að fara að gera í vetur? Vinna? Læra? Vinna og læra? Djamma? Ég verð sjálf að læra (master í íslenskri málfræði) og svo verð ég í tveimur til þremur vinnum (Þjóðarbókhlaðan, kenna í Háskólanum og hugsanlega að kenna tveimur 10. bekkingum fyrir samræmda prófið í íslensku). Þannig að ég ítreka: hittumst endilega á meðan fólk hefur ennþá tíma til þess. Hef þetta ekki lengra að sinni, Halldóra.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 20:56:48 / laugin

Hey Eyþór!

Ef þú skyldir ennþá lesa þetta.. gætirðu sagt mér hvort það verði nokkurn tímann svokölluð sektarlaus vika á bókasöfnunum í Reykjavík eða hvort það sé einungis goðsögn ætluð til þess að lokka skulduga lestrarhesta inn á þessar annars ágætu stofnanir?

Takk, Patsy


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 16:46:00 / laugin

Óska eftir hjálp...

Ég er nú ósammála síðasta ræðumanni um að síðan er alveg dauð. Einstaka sinnum má blása lífi í hana, sérstaklega þegar tími er kominn á hitting.

En ég ætlaði að leita ráða hjá ykkur góða fólki. Málin standa svo að það er verið að skipuleggja kokkteil kvöld hjá vinkonum mínum og verður keppt um hver býr til besta kokkteilinn. Sá hinn sami hlýtur vinning (sem enn er ekki vitað hvað verður) og var ég að vonast til að einhver gæti gefið sig fram með hina fullkomnu uppskrift að hinum fullkomna kokkteil.

Ég vonast eftir mikilli og virkri hjálp frá ÖLLUM;)

Verð gífurlega þakklát...

Bestu kveðjur

Svava


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Leitarbox