Blogg laugarinnar

Blogg fyrir fyrrverandi eða núverandi starfsmenn laugarinnar!

29.07.2005 08:48:08 / laugin

Dagskráin um helgina

Sælir krakkar. Birgitta Haukdal hér. Vildi bara láta ykkur vita hvað er að gerast um helgina hjá mér. ;)

Er að hita upp fyrir Papana á Sjallanum Akureyri í dag (föstud). Verð síðan á Neskaupsstað á laugardag ásamt Jónsa í svörtum fötum og við sýnum atriði úr ávaxtakörfunni. Svo flýg ég.... eða ekki ég, ég kann ekki að fljúga:S... til vestmannaeyjar og þar spila ég beint á eftir Árna J. eftir brekkusönginn... endilega mætið og e-n þessa atburða :)... ég get reddað ykkur frítt inn ;) ....S.8662559

kv BH8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.07.2005 12:54:11 / laugin

Omar handtekinn

Frétti í morgun að breska lögreglan hefði undir höndum mann af afrískum uppruna sem hefði gert misheppnaða tilraun til að sprengja upp "infidels" í Lundúnum fyrir sléttri viku. Gekk maðurinn undir nafninu Omar. Nú spyr ég, er Ómar kominn heim frá útlöndum, eða er um einn og sama manninn að ræða? mbk. Benni

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 15:47:50 / laugin

Stemmning fyrir brennó?

Ég sá brennibolta í Hagkaupum í gær og er alveg til í að fjárfesta í einum slíkum ef stemmning er fyrir því að fara í brennó, skotbolta, yfir eða einhvern annan leik á morgun. Endilega látið vita hvernig ykkur líst á það. Og þið megið líka koma með hugmyndir að skólalóðum eða öðrum heppilegum stöðum til að fara í slíka leiki.

Kveðja, Halldóra.


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 13:08:11 / laugin

Hvert er fólk að fara?

Sæl verið þið. Það voru ekki margir sem mættu í boltan á þriðjudaginn. Ekki einusinni ég, en boðaði þó forföll.

Annars er ég að velta því fyrir mér hvert allir eru að fara um verslunarmannahelgina.

Hvert ætlið þið?

Kv Helena:haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.07.2005 16:09:14 / laugin

Sól og sumar

Það er á svona dögum sem ég er mjög þakklát fyrir að vera hætt í lauginni. Þið sem eruð föst þar eigið alla mína samúð.

- Halldóra


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.07.2005 12:56:18 / laugin

Er stemmning fyrir Esjunni í dag?

Það er sólskinsveður. Hver er til í það?

kv Helena8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2005 18:10:38 / laugin

Fótbolti?

Eigum við að hittast aftur á þriðjudaginn stundvíslega kl. 19:30 og spila fótbolta? Og eigum við þá ekki að láta vita af okkur og mæta í alvörunni?

 -Patsy


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.07.2005 18:08:41 / laugin

Hvar er stuðið?

Jæja, ég var sem sagt í þessum hörku skemmtilega fótbolta í gær... Alveg heljarinnar fjör!!! EÐA þannig...

Ég var sú eina sem mætti. Fúlt :cry: Veit reyndar Helena komst ekki (löglega afsökuð) og að Patsy var á leiðinni, en ég hringdi í hana og við aflýstum þessu... Veit ekkert hvað varð af hinu fólkinu.

Ef við ætlum að halda áfram með þessa góðu þriðjudags fótboltaleiki þá verðum við að taka okkur soldið á og t.d. finnst mér að fólk ætti að tilkynna ákveðið hvort það ætli að mæta eða ekki og mér finnst að allir ættu að tilkynna um sína hagi, nema auðvitað e-ð komi upp á, þá er það afsakað. En ef allir gera það, þá þarf enginn að mæta einn og yfirgefin upp á völl! Ég veit allaveganna að ég nenni því ekki aftur, þó að þetta var auðvitað ágætis göngutúr (Always look on the bright side of life:D).

Og síðan er annað að fólk ætti að reyna að mæta á réttum tíma, ef við ætlum þ.e.a.s. að halda eitthvað áfram með þetta... því annars heldur fólk kannski að enginn ætlar að mæta og fer bara :$

En nú er ég allaveganna búin að ausa út úr mér allskonar óyrðum 8| og vona að allir taki þessu með sátt ;) en ég er þá bara að hugsa um að hætta og er farin að pakka, því ég er nefnilega að fara til London á morgun! YEAH :haha:

En ég vona bara að við sjáumst bráðlega í fótbolta :$ og kveð ég nú að sinni.

kveðja Svava :P


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.07.2005 08:27:07 / laugin

Fótbolti á þriðjudagskvöldi...

Hæhæ,

Hverjir eru til í fótbolta á morgun, þriðjudegi kl. 19:30???

Ég veit allaveganna að mig dauðlangar til að hreyfa mig. Hverjir eru game?

Kv. Svava


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.07.2005 15:19:08 / laugin

Er fólk að beila á fótbolta í kvöld??

Halló... hvar er metnaðurinn og aginn?

Hver kemur í fótbolta í kvöld með mér?

Enda ég kannski bara ein í ASNA

kv Helena


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.07.2005 13:07:32 / laugin

Er það Esjan í dag??

Gott fólk.

Ég held að það rigni á esjunni.... eigum við að fara í dag eða fresta því og fara í fótbolta á morgun? Mig vantar svör!


» 6 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox